12mars

Veröld versnandi fer.

Ég var heima rétt áðan í hádeigsmat og rak þá augun í grein í blaðinu 24 stundir. Það hreinlega stóð í mér!
Næsta haust á að leifa kynlíf á daginn og á nóttunni í Almenningsgörðum í Amsterdam! já þið lásuð rétt, þeir ætla að leifa kynlífsathafnir á almannafæri á daginn og nóttunni!
Hundaeigendur eru ævaræðir þar sem þeim ber skylda að hafa hunda sína í ólum en svo er þetta leift.
Hugsa sér greyið hundarnir þurfa að vera bundnir niður en geðsjúku kynvillingarnir mega ganga lausir að særa blygðunarkennd gesta og gangandi!

Myndi maður ekki binda fyrir augu barna sinna þegar maður væri með þau á gangi í borginni! eða loka þau bara inni.
Ég segi bara veröld versnandi fer og siðferðið versnar enn hraðar!

Ég á ekki eitt aukatekið orð, er fólk virkilega bara að stunda kynlífathafnir hér og þar í Almenningsgörðum!
Fummsumsvei! sumum er hreinlega ekki við bjargandi!

en engu að síður heldur lífið áfram og páskarnir nálgast. Ég ætla að vera ótrúlega hugrökk og fara suður á föstudaginn og horfa á gettu betur, þrátt fyrir hlátur og grátur í síðustu ferð:)

Ég ætla ekki að hafa þetta blogg lengra, þar sem það er jú ekki á topp vinsældarlistanum haha.. en það er jú ekki það sem máli skiptir. 

Inga Heinesen
12. mars 2008 klukkan 13:05
Inga Heinesen
1 athugasemd
07mars

Gettu Betur.

ég helt að dagar mínir væru taldir! ég hafði náð að dotta, en vaknaði með rosalegan hálsríg og kannaðist ekkert við mig, las á svipnum á Önnu að það var sko ekki allt með feldu.

það kom ein sú mesta hræðsla yfir mig sem ég man eftir held ég bara! það var aðeins einn staður sem ég vildi ekki vera á og það var akkúrat þarna, í rútunni með fullt af fólki og inní einhverjum dal sem ég hafði aldrei komið í áður. Hver eldgamla brúin tók við af annarri og helst í eða rétt eftir mjög krappri beygju.

Ég man vegin eins og ég stæði á honum núna, var ekkert smá vakandi þrátt fyrir ógeðslega mikla þreytu.
En ég komst þó á leiðarenda í fanginu Önnu. Takk Anna :*

En sigurinn var ekkert smá sætur! Þar sem við erum jú ný búin að tapa fyrir MH í morfís mátti þetta ekki klikka! og gerði það auðvitað ekki. :D
Því segi ég bara MH með rjóma á, það er gott að fá!

Klappliðið stóð sig með prýði og vill ég meina að MH-ingar þurfa að fara að finna uppá nýjum klöppum. Hvernig var í rútunni, er ekki beinlínis frumlegt þar sem ferðin til Reykjavíkur var mjög góð :) en kommon, hvernig var í rútunni, hvernig var í rútunni, hvernig var í rútunni... öhm bara fínt sko :)

það er kannski ekki hægt að segja að klöpp menntskælinga séu sérstaklega innihaldsrík, en þau eru þá flott :) kisi kisi hvar sefur kisi í MA fór á kostum haha. Ég vill samt meina að það hefði verið skemmtilegra að eiga klapp um ugluna :)

Nú fer að líða að akstursmati, ef ég á að segja alveg eins og er þá er ég bara nokkuð stressuð fyrir þetta! þó svo að það væri kannski best að ég félli á þessu, og ef það gerist, þá er það gert viljandi, og með hag allra fyrir brjósti. Haha.

en ég kveð að sinni 
Inga H.
07. mars 2008 klukkan 16:45
Inga Heinesen
Engin athugasemd
28febrúar

Bernskuminningar.

Ég átti einstaklega erfitt með að sofna í gærkvöldið eftir vinnu, Ása kom á kaffið með stelpunum og við fórum að spjalla, sem fékk mig svo til að hugsa lengst aftur í tímann...
Nú tala ég eins og gömul kona þetta voru reyndar 10-15 ár sem mér finnst samt era heil eilífð.

Finnst það vera tugir ára síðan ég lék mér í sandinum, playmo, búðaleik, barbie, gist í tjaldi, farið í vatnsstríð og hoppað í gegnum úðara.

Ég labbaði í gegnum Fögrusíðu, gatan sem ég ólst upp í, bankaði uppá hjá Söndru, það fuku milljón minningar um heilann. Ég bankaði síðast á þessar dyr fyrir örugglega 5 árum, eða meira!
Allt virtist svo lítið, getur það verið að mér hafi einu sinni fundist þessi litla gata eins og allur heimurinn að stærð, áður en ég fór í skóla fannst mér ég ekki þurfa að fara lengra en út úr húsinu mínu þá hafði ég sé allt!
Það var þarna sem við fórum í eina krónu, snerta þrjá hluti, útilegumaðurinn og svo marga marga aðra leiki hvern einasta sumardag. Þó var hafnarbolti held ég bara sá vinsælasti :)

ég gæti haft þetta blogg endalaust langt, sagt ykkur frá því þegar við fórum í playmo úti, tjölduðum og gistum í tjaldi anann hvern dag á sumrin og þess á milli hoppuðum við í úðara, vatnssippubandið var þó held ég vinsælast. Mamma kom með það heim frá Dublin og það var hoppað í gegnum það þangað til það varð ónýtt :)

En ef ég á að lýsa bernsku minni í einni setningu væri það ekki hægt! hún var yndisleg, full af gleði og áhyggjuleysi og hverfis kaffi í fögrusíðu 11e þar sem hver fjölskylumeðlimur kom með minnsta kosti einn vin í kaffi og mamma bakaði og bakaði :)

Yndislegt líf! get ekki beðið eftir því að gera bernsku barna mina jafn góða! :)
ekki misskilja mig, ég er ekki ólétt og ekki a leiðinni en einn góðann veðurdag æltla ég að vera mamman sem bakar ofa í hálft hverfið :)

Kveðja Ingan uppí skýjunum :)
28. febrúar 2008 klukkan 20:18
Inga Heinesen
2 athugasemdir
21febrúar

Fimmtudags leti

ég var svo löt í morgun, þið trúið því ekki! vaknaði um 8 leitið, hugsaði með mér, Inga! drullaðu þér á lappir... en svo naði það ekki lengra þar sem ég rotaðist fljotlega aftur. Vaknaði aftur klukkan 10, Inga þetta gengur ekki lengur, á fætur!
Jú, það gekk, ég stóð upp ráfaði niður og gerði mig til fyrir skólan, leit svo á klukkuna, aahhh hálf 11, nei andskotinn ég fer ekki að gera mér ferð niðrí skóla í einn og hálfann klukkutíma..

Alveg ótrúlegt hvað heilinn spilar með mann stundum, í morgun útilokaði hann alla rökhugsun, ég hugsaði bara um hvað ég nennti, sem var mjög fátt. Nennirinn er yfirleitt í sögulegu lágmarki á morgnana hjá mér :)

En dagurinn í dag fór mikið í að gera örðum til geðs, sem á endanum gerir manni sjálfum svo til geðs, notalegt að hjálpa öðrum :)
Allir í Engimýri 3 hundlasnir nema ég :) þar er ég komin í mömmu hlutverkið.

Gott og vel, í félagfræði tíma í dag las ég gömul blogg í félagsfræði í dag og gamlar myndir, ég hélt ég mynd ekki hætta að hlæja! Þetta var einum of sko :)

Jæja, það lítur út fyrir það að ég nái ekki að hrofa á nýjasta Hous í kvöld, svo lengi að dl! jæja, það verður að bíða betri tíma... en ég ætla að fara að hætta þessu þvaðri og klára að horfa á myndna sem ég er að horfa á :)

Hafið það gott, Inga
21. febrúar 2008 klukkan 21:11
Inga Heinesen
2 athugasemdir
20febrúar

Risin upp frá dauđum..

Það er að segja síðan...

Þegar ég var að vafra á veraldarvefnum áðan, skoða blogg og forvitnast, hugsaði ég með mér vá.. ég átti einu sinni bogg...

ég hafði áður reynt að vekja síðna upp, án árángurs ég meira að segja eyddi fullt af bloggum og ætlaði að byrja uppá nýtt, fresh start. En ég komst ekki lengra í að eyða, ég hló svo mikið þegar ég var komin þetta langt til baka að ég bara hafði það ekki í mér að eyða meiru, góðar minningar sem bara verða að fá að vera þarna...
Þess má einnig til gamans geta að þrátt fyrir ástarjátningarnar í gömlu bloggunum vorum ég og Óli ekki saman þarna! haha...

En nóg um það! snúum blaðinu við :)

miðvikudagurinn hinn ógurlegi er um það bil að ganga yfir, eða minnsta kosti það sem ég mun upplifa af honum, ég fer hugsanlega snemma að sofa...
mjög erfiður dagur, ég vaknaði eftir of langan svefn alltof þreitt í kjöfarið og sofnaði í eyðunni minni, sem boðaði ekki gott...

Egill, Helga Guðrún, Brynjar Daði og Aron Máni komu áðan, ég hef reyndar ekki hitt þau enda Egill farinn aftur suður til að keyra norður! en ég ætla sennilegast að kikja uppí Austurbyggð á eftir og sjá krúsídúllurnar :)

ég ætla að fara að aðstoða veiku múttuna mína, hafið það gott í bili :)

Kv. Inga Heinesen
20. febrúar 2008 klukkan 20:36
Inga Heinesen
1 athugasemd
27september

GRENJUM HÁSTÖFUM!!

Góða kvöldið.. ég ætla mér að skipta blogginu í tvennt byrja á því skemmtileg og svo enda á því leiðinlega sem ég reikna með að enginn lesi....

Gott:

ég fékk lánaðann síma hjá Herdísi áðan!! þið getið loksins hringt í mig!!! :D
mér tókst að sofna í góðann einn og hálfann klukkutíma í sófanum!! hvort sem það sé gott eða slæmt..
ég er komin með lausn á hausverknum loksins!
ég er ekki að vinna í dag...

BORING!!:

ég svaf yfir mig í morgun!!
ég sofnaði í sófanum og missti af klippingu og litun :'(
ég er ógeðslega þreitt!!
ég er að fara í próf á morgun og ég er of pirruð til að læra :@
ég þarf að skila stæ heimadæmum á morgun og ég nenni ekki að byrja á því að reyna að skilja þau..
ég þarf að vera með nörda gleraugu nærstu þrjár vikurnar... lausnin á hausverknum!
það er fáránlegt hvernig hegðun annara fer alveg með mann stundum!!


æh.. ég gæti hreynlega talið upp endalaust... en ég ætla að hlífa ykkur...

ágætis dagur í heildina... lítið í skólanum endalausar eyður og verkefni útaf tungumáladeginum!
ég þarf að reyna að lesa! þannig við segjum þetta gott í bili.. :/

Inga Heinesen
27. september 2006 klukkan 00:30
Inga Heinesen
18 athugasemdir
23september

Hver ţú ađ leggja mér lífsreglurnar!!

Nenni ekki að blogga mikið eeen..

kvöldið í gær var geggjað, vikan frábær, skólin yndislegur, bekkjarfélagar.. aaahh ókei..neinei.. þið eruð frábær þarna lengst inni...

annars vild ég aðalega koma þessu á framfæri:

Hvern er fólk að reyna að blekkja? hver þykist þú vera að setja reglur ef þú ætlar ekki að fara eftir þeim sjálf! hvernig getur ein manneskja labbað inn í líf eins og okkar, og gjörsamlega rústað því sem við vorum búnar að byggja, á einu sumri breytist svo margt, eða kanski örfáir aðilar breyttust mikið, eða kanski kynntist maður þeim  bara betur, kanski er þetta manneskjan í raun og veru. Ef svo er þá eigum við alls ekki samleið, ég kann ekki að meta svona, þetta er argasti dónaskapur! og illa gert! og ég er ekki ein í þessum sporum! þetta á við okkur nokkrar...

en aðalatriðið er þaaaað að ég vill komast að því hvernig fólk getur sett reglur, logið í andlitið á manni og farið ekki eftir eigin reglum og er drullu sama þótt það ljúgi að þér, allt til að fela sig, vera góða manneskjan en innst inni er það eigingjarnt og illt.

vill taka það framm að þetta snýst ekki um e-ð eitt, ekki um einhverja eina óheiðarlega manneskju, ekki einn vin, ekki þig og ekki hana. Einungis það sem mér finnst...

taktu þessu eins og þú villt ég ætla mér ekki að taka ábyrgð á því,,,

en svo vildi ég láta ykkur vita að ég er ekkert að væla e-ð, ég er ekkert e-ð heví sár eða pirruð, bara að reyna að hugsa á réttmætann hátt... eftilvill vitlaus hugsun, en hverjum er ekki sama, þetta er jú BARA blogg....

Inga Heinesen ofurnagli! :D
23. september 2006 klukkan 22:20
Inga Heinesen
15 athugasemdir
11september

Kaldar tásur...

Ég ætla að byrja á að segja ykkur hvað þið eruð ömurleg! hver bauð ykkur að lesa bloggið mitt án þess að kvitta :) þetta er lélegt! alltof lelegt...

En útí aðra sálma...

síminn minn er alveg að fara yfir um... ég heyri ekkert í þeim sem hringir í mig en ég held að sá sem hringir heyrir í mér... e-ð þannig rugl :/ spurning um að fara að fá sér nýann?? góð hugmynd ;)

Tærnar eru að detta af mér! ég er búin að vera að frjósa í allann dag.. og enginn til að hlýja mér :(

Matti átti afmæli í gær, loksins orðinn 20 ára, til hamingju með það kallinn ;) ég fór í afmæli til hans í gær uppá dáta geggjað stuuð.. :)

eftir afmælið fór ég á sálina heví gaman :) annars var þetta bara hin rólegasta helgi :D

ég veit ekki hvað ég á að segja.. hef ekkert merkilegt.. reyndar helling í gangi í hausnum á mér.. nóg að hugsa um.. ófáar andvökunætur, ligg bara og hugsa.

ég nenni ekki meir :) kvittiði fjandinn hafi það!!!!!

Inga Heinesen
11. september 2006 klukkan 00:07
Inga Heinesen
15 athugasemdir
06september

Drama Drama!

enginn búinn að kvitta á síðustu færslu þannig ég bara varð að henda annari inn ;)
kanski ekki nema von að fólk nenni ekki að skoða svona lélega bloggsíðu hehe :)

en ég er búin að vera í fríi í allann dag heví næs ;) ég vaknaði rúmlega hálf 8, við það að Ragnar stóð yfir mér bara að bíða eftir að ég vaknaði og óskaði honum til hamingju með afmælið :) ég var ekki lengi að knúsa krúttið :D Ragnar til hamingju með afmælið hon :*

en ég fékk að sjálfsögðu að sofa lengur meðan hann var í skólanum og svo eftir skóla fór ég með Ragnari og Mömmu í bakaríið og svo fór ég í sund mér Jöru :)

frekar góður dagur sko.. enda mátti hann alveg vera það, til að bæta upp daginn í gær! ég var að bilast!! það gekk gjörsamlega ekkert upp hjá mér... en eftir sundið fórum við jara heim að sofa þangað til hún fór í vinnu og þá fór ég heim og lenti í þvílika nágranna þættinum!! usss... ég hef bara aldrei kynnst öðru eins! bara ekki síðan að Drew dó... uss... mín lenti bara í táraflóði með Ben&Jerry's ís alveg að missa það sko.. :) een það er bara gaman að því :P

annars vildi ég nú líka kvetja fólk til að kvitta :) ég er að taka mig á í blogginu og það gengur bara vel sýnist mér :) þannig að allir verða að kvitta ;)

Inga Heinesen
06. september 2006 klukkan 23:59
Inga Heinesen
2 athugasemdir
05september

Jæja... núna er ég búin að vera í fríi í allann dag og ekki stígið útúr húsi og varla drullast úr náttaranum nema rétt svo til að fara í bað :D þetta kallar maður almennilegt sko! :D

en já.. ég veit að ég er ömurlegur bloggari og þannig verður það bara! neinei... það breytist væntanlega þegar ég hætti að vinna svona mikið :) ég er svona við það að hætta í Vin er bara svona auka :D heví næs ;)

en helgin var hin rólegasta allavega hjá mér, annað má segja um allt þetta geðbilaða fulla fólk sem mátti sjá útum allann bæ um helgina! mér fannst þetta svona frekar klikkuð helgi í bænum og fólk annað hvort ofurölvað eða útúr spíttað útum allar trissur að berja mann og annann...

það eru bara 9 dagar í það að skólinn byrjar á fullu og ég hreynlega get ekki beðið! úff.. það verður geðveikt að byrja aftur og hitta allt fólkið og bara já.. gera e-ð annað en vinna allann daginn :) ég er ekki frá því að ég er bara í einum af bestu bekkjunum :D 2.H að meika það ;) algjör snilld :P

annars er e-ð minna að frétta af mér... ég er byrjuð aftur í Hagkaup.. hjálp! ég er háð .. neinei hehe þetta var meira svona af því ég fékk vinnuna á staðnum og það var bara auðveldast ;) svo verð ég líklegast að vinna e-ð aðeins í Stjörnusól í vetur :) geggjað gaman :)

en ég nenni ekki að bulla meira.. er mikið að velta því fyrir mér að fara að drullast til að gera e-ð !! koma mér út! er buin að hanga alltof lengi inni :D

Inga Heinesen
05. september 2006 klukkan 01:22
Inga Heinesen
Engin athugasemd

Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Innskráningar kubbur